5.8.2009 | 18:48
Smá fréttir af lífinu og tilverunni:)
Lífið er ljúft nóg að fólki og annasamt síðan síðast nægur félagsskapur og ég búin að fá mömmu hingað út aftur og það er náttúrulega bara frábært (þeir sem að til þekkja vita að mamma segir að það hafi alveg gleymst að klippa á naflastrenginn þegar ég fæddist, ég er reyndar ekkert sammála-til hvers eru mömmur annnars?) Svo áttum við góða viku með þeim mæðgum Þórunni og Dagbjörtu Fjólu þær komu til okkar og voru í viku mjög nice, gönguferðir,búðaráp, almenningsgarðar skoðaðir, hjólatúr, rúntur um als o.fl. Svo kom Pétur og sótti mæðgurnar og stoppaði yfir helgina. Hin magnaðasta helgi Erla Vala flutti í íbúðina í bakgarðinum muniði! svo fórum við í þetta líka fína Íslendingafélagsgrill í Kathrinarlundi það var ofsa gaman og hittum við þar fullt af góðu fólki allavegna svona við fyrstu sýn, Pétur og Kobbi toppuðu þetta svo með því að fara á loftið-skemmtstað ísl hér í SDB en við Þórunn tókum því rólega heima enda bara fínn skemmtistaður líka Ég átti alveg eftir að segja ykkur frá fallega brúðkaupsdeginum okkar Kobba sem bar uppá fimmtudag bjartan og fagran
en þá skelltum við okkur út að borða á þessum líka fína stað niður við höfnina bara nice. OG það sem meira var að Kobbi pantaði með dyggri aðstoð frá Stínu borðið og planaði þetta já TAKK. Okkur var óskað til lukku með daginn þegar við komum þar sem Stína hafði tekið þetta skýrt fram af hvaða tilefni þetta væri og var meira segja flaggað dönsku flaggi á okkar borði í tilefni dagsins
Af alvörunni en Kobbi byraði í skólanum á mánudaginn; dagur nr 1 var ruglingslegur Kobbi var þó seinn sé oft mættur á undan kennurunum og var í góðum gír þrátt fyrir rugling Allt á dönsku og det er bare ikke so lidt fyrir Kobba minn. Dagur nr 2 var enn ruglingslegri Adocat og alless þann dag og Kobbi greyið bara næstum farin að skæla yfir GLÆNÝRRI útgáfu af Adocat og dönskunni
en ég stappaði í hann stálinu og minnti hann á að dætur hans væru nú líka nýbyrjaðar í dönskum skóla humm humm Dagur nr 3 var svo bara æði og það er dagurinn í dag hvað gerði þessa breytingu er spurning kannski sæti kvennkyns kennarinn sem var að hefja störf, maður spyr sig
Svo er það dagur 4 á morgun og það mun vera 6. ágúst og fyrir þá sem ekki vita er það fæðingardagur JAKOBS
Þrátt fyrir það hef ég fengið leyfi til að fara til Hamborgar og heimsækja Pétur og hans lille familie, ekki leiðinlegt það og auðvitað sagði Kobbi bara að við gerðum okkur bara glaðan afmælisdag síðar ekki málið ekki dettur mér í hug að hann geti gert sér glaðan dag án mín og Blædísar Bjartar en yngsti meðlimurinn verður honum til ánægju um helgina enda ekki vænleg í búðarrápi og fleiru í Hamborg
Við tökum Palla og múttu með svo þetta er magnað. Með garmininn og á rauða drekanum mínum eru mér allir vegir færir..................
Af atvinnumálum er allt bara í vinnslu, held það sé best orðað þannig bíð eftir svörum um 4 Iðjuþjálfajob sem ég hef sótt um mjög spennandi og verð ég að bíða róleg þar til eftir miðjan ágúst, ég fer nú létt með það vona ég, allt að koma í þolinmæðiþjálfuninni Mér var að vísu boðið iðjuþjálfastaða á sjúkrahúsinu í Haderslev um daginn en ég afþakkaði hana bara hentar mér ekki þar sem þetta var FULLT starf, byrja lá við samdægurs og of langt héðan í þokkabót en samt ánægð með að hafa fengið boðið.
Í morgunn fékk ég svo símhringingu frá konu sem hefur með Atvinnu með stuðningi að gera hér í Danmörku, ég var nývöknuð en vöknuð þó með öðru auganu a.m.k og hún talaði hraða dönsku og ég gerði mitt besta að skilja og svara á móti. Ég var búin að e-maila henni en hún ætlar að koma mér í samband við einhver hér í Sönderborg sem hefur með AMS að gera
Svo er ég orðin sjúk í fasteignaauglýsingar...veit ekki hvar þetta endar hummmm
en held þetta sé barasta komið í bili og MUNIÐ GESTABÓKINA
Sólarkveðjur með sanni frá SDB
Ragna V og co
Athugasemdir
Mikið vildi ég vera þarna hjá ykkur. Er pláss fyrir litlu mig og hund sem er á stærð við meðal hross ha ha ha.
Saknaðar knús á ykkur öll. Ég kem fyrr en varir finn það á mér
Eva (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 15:18
Hæhæ.
Til hamingju með brúðkaupsafmælið ykkar um daginn og til hamingju með afmælið Kobbi.
Það er greinilega engin lognmolla í kringum ykkur frekar en fyrri daginn.
*kossarogknús á ykkur öll*
Guðlaug (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 18:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.